Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Verndum þau

Um viðburðinn:

3. júní 2020 – Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123.

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Næsta námskeið fyrir þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn fer fram þann 2. júní 2021. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
03/06/2021
Tími
17:00 - 20:30
Aldurshópar:
Dróttskátar, Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar

Staðsetning

Skátamiðstöðin
Hraunbær 123
Reykjavík, Reykjavík 110 Iceland
+ Google Map
Sími:
5509800
Vefsíða:
View Staðsetning Website