Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Gilwell 2023 – 1. hluti

Um viðburðinn:

Það er komið að því!

Fyrsta helgin í Gilwell leiðtogaþjálfuninni árið 2023 verður haldið helgina 20.-22. janúar.

Gilwell er tilvalið fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins.

Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast nýja færni í ólíkum hlutverkum innan skátahreyfingarinnar sem mun einnig koma að góðum notum í þeirra daglega lífi.

Gilwell leiðtogaþjálfunin tekur ár en er skipt upp í þrjár lotur

1. hluti – Skátinn

Í fyrsta hluta er athyglinni beint að skátanum sjálfum og unnið með sjálfseflingu, framkomu og gildum einstaklings í og utan skátastarfs

2. hluti- Flokkurinn

Í öðrum hluta er flokkastarf í forgrunni. Á þessu skrefi munu flokkarnir reisa tjaldbúð sem þeir búa og starfa í með sínum flokki og glíma við ögrandi verkefni sem miða að því að efla hópinn og auka færni í útivist og tjaldbúðalífi.

3. hluti- Leiðtoginn

Í þriðja hlutanum vinnum við með leiðtogafræðin og hæfni hvers og eins.

Forkröfur

Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiði fyrir sveitarforingja, eða sambærilegu námskeiði. Boðið verður upp á auka námskeið í janúar fyrir þau sem hafa ekki lokið slíku námskeiði.

Verð og skráning

Verð fyrir Gilwell leiðtogaþjálfunina er 120.000 krónur en innifalið í því er gisting, matur og dagskrá fyrir öll skrefin. Boðið verður upp á 10% afslátt á verðinu fyrir þau sem skrá skig fyrir 1. desember.

Skráning er opin en henni lýkur 12. janúar.

Skráning er eftir skátafélögum og á sett á 0 krónur þar sem mörg félög greiða fyrir sína þátttakendur og hvetjum við félög að nýta fræðslustyrk sinn hjá BÍS.

Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.

​Með því að skrá þig á Gilwell samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

  1. Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
  2.  Staðfestingargjaldið, 10% af námskeiðsgjaldi og er það óafturkræft.
  3. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  4. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
  5. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
    Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin.
  6. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.​

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
20/01/2023
Endar:
22/01/2023
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar

Skipuleggjandi

Skátaskólinn
Sími:
5509800
Netfang:
skataskolinn@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland
+ Google Map
Sími:
482-2674
Vefsíða:
View Staðsetning Website