Vetraráskorun Crean

Um vetraráskorun Crean:

Verkefnið er samstarfsverkefni BÍS og Scouting Ireland. Crean vetraráskorun hefur verið haldin síðustu þrettán ár og stendur yfir sjö mánaða tímabili sem lýkur í viku löngum leiðangri um Hellisheiði. Verkefnið hefur verið vel sótt og frá Írlandi koma allt að 30 skátar sem hafa farið í gegnum langt umsóknar- mats- og undirbúningsferli og er BÍS með 16 pláss fyrir þátttakendur frá Íslandi.

Markmið verkefnisins

Markmið verkefnisins er að þátttakendur öðlist færni í útivist í mismunandi aðstæðum ásamt sjálfbærni í vetrarferðum á fjöllu. Skátarnir læra undirstöðuatriði fjallaferða og vetrarferðamennsku. Meðal annars skyndihjálp á fjöllum, gönguferðir að vetri, rötun og kortalestur, að nota GPS, næringarfræði ferðamannsins, skálahegðun og ferðareglur í hópferðum, veðurfræði á fjöllum, og ýmislegt annað. Verkefnið skiptist í þrennt;  fjórar undirbúnings ferðir, persónuleg verkefni unnin í frítíma og ferðinn í febrúar 2024.

Fyrir hverja

Takmarkað pláss er fyrir þátttakendur og mun elsta árið í dróttskátum fá forgang en umsóknir og umsagnir ráða úrslitum um hver verða tekin inn ef fleiri en 16 sækja um. Því er mikilvægt að vanda til verka við umsóknina. Ætlast er til þess að þátttakendur taki þátt í undirbúningsútilegunum sem nefndar eru hér að neðan og vinni að sínum settum markmiðum fram að febrúarferðinni í formi leiðabókar. Verkefnin eru á sviði vetrarferðamennsku, sjálfskoðunar, markmiðasetninga og samfélagsvinnu. Vinna þarf öll verkefnin á tilsettum tíma til að geta haldið áfram í áskoruninni. Verkefnisstjórnin áskilur sér rétt til að enda þátttöku ef að þátttakendur standa ekki skil á verkefnum eða sýna að þeir hafa ekki getu eða vilja til að ljúka verkefninu.

Hvenær

Crean vetraráskorunin sjálf á sér ávallt stað í febrúar en undirbúningshelgarnar dreifast um mánuðina á undan. Nákvæm dagsetning fer yfirleitt eftir hvenær hagstætt sé fyrir Írana að koma til landsins ásamt skólafríium.

Árið 2023-2024 gildu eftirfarandi dagsetningar og skiptust verkefnin í eina kvöldstund, fjórar undirbúningsútilegur og einn leiðangur um Hellisheiði.

  • 7. september, fimmtudagur í Reykjavík
  • 9-10. september, undirbúningsútilega 1, lau – sun
  • 29.sept-1.október, undirbúningsútilega 2, fös – sun
  • 18.-19. nóvember, undirbúningsútilega 3, lau – sun
  • 19.-21. janúar, undirbúningsútilega 4, fös-sun
  • 9.-16. febrúar, vetraráskorun Crean Úlfljótsvatn

Kostnaður

Kostnaður við Vetraráskorun Crean er  breytilegur hverju sinni en árið 2023-2024 var kostnaðurinn 64.990,- kr. á mann.

Innifalið í því er dagskrá, kvöldmatur í fyrstu tveimur undirbúnings ferðum, gisting og flutningur af heiðinni í febrúar. Þátttakendur þurfa sjálf að koma með annan mat fyrir undirbúningsferðirnar og koma sér á staðsetningar ferða og heim aftur. Þátttakendur þurfa að hafa allan helsta persónulegan búnað til vetrarferð s.s. góðan skjólfatnað, svefnpoka sem þolir vetrarveður, bakpoka og gönguskó. Ekki er nauðsynlegt að eiga klifurbúnað, ísaxir, brodda, skíði eða tjöld. Ef þátttakandi á ekki réttan búnað, er gott að athuga hvort hægt sé að fá lánaðan búnað hjá ættingjum, vinum eða jafnvel skátafélagi.